Google Chrome er hraður og öruggur vafri sem er auðveldur í notkun. Hann er sérhannaður fyrir Android og býður upp á sérsniðnar fréttir, fljótlega tengla á uppáhaldsvefsvæðin þín, niðurhal, innbyggða Google leit og Google Translate. Sæktu Chrome núna til að nota vafra sem þú þekkir í öllum tækjunum þínum.
Hröð leit og minni innsláttur. Veldu úr sérsniðnum leitarniðurstöðum sem birtast um leið og þú slærð inn orð og skoðaðu vefsvæði sem þú hefur heimsótt áður á fljótlegan hátt. Notaðu sjálfvirka útfyllingu til að fylla fljótt út eyðublöð.
Huliðsstilling. Nýttu þér huliðsstillingu til að vafra á netinu án þess að vista ferilinn. Farðu huldu höfði í öllum tækjunum þínum.
Samstilling Chrome í fleiri tækjum. Þegar þú skráir þig inn í Chrome eru bókamerkin, aðgangsorðin þín og stillingar samstilltar sjálfkrafa í öllum tækjunum þínum. Þú getur nálgast allar upplýsingarnar þínar á auðveldan hátt í gegnum símann, spjaldtölvuna eða fartölvuna.
Allt uppáhaldsefnið þitt er innan seilingar. Chrome er ekki bara hraðvirkt við leit heldur líka hannað til að gera allt uppáhaldsefnið þitt aðgengilegt með einni snertingu. Þú getur ýtt beint á eftirlætisfréttasíðurnar eða samfélagsmiðlana þína á nýju flipasíðunni. Chrome býður líka upp á eiginleikann „Snertileit“ á flestum vefsíðum. Þú getur smellt á hvaða orð eða setningu sem er til að hefja Google leit, án þess að fara af síðunni sem þú ert að skoða þá stundina.
Verndaðu símann þinn með öruggri vefskoðun Google. Örugg vefskoðun Google er innbyggð í Chrome. Með henni færðu sendar viðvaranir þegar þú reynir að fara inn á óöruggar síður eða að sækja hættulegar skrár og getur þannig verndað símann þinn.
Hraðvirkt niðurhal og hægt að skoða vefsíður og myndskeið án nettengingar Chrome er með sérstakan hnapp fyrir niðurhal sem gerir þér kleift að sækja myndskeið, myndir og heilu vefsíðurnar með einni snertingu. Chrome býður líka upp á innbyggða geymslu fyrir niðurhal þar sem þú finnur allt efnið sem þú hefur sótt, jafnvel þegar þú ert ekki með nettengingu.
Google raddleit. Með Chrome færðu alvöru vafra sem hægt er að tala við. Nýttu þér raddleitina til að fá fljótleg svör án þess að þurfa að slá nokkuð inn. Þú getur talað við símann til að finna og skoða efni á vefnum hratt og vel hvar og hvenær sem er.
Google Translate er innbyggt: Fáðu þýðingu á heilu vefsíðunum með hraði. Google Translate er innbyggt í Chrome til að aðstoða þig við að þýða efni á netinu beint yfir á þitt tungumál með aðeins einni snertingu.
Snjallar sérsniðnar tillögur. Chrome lagar upplifun þína að því sem þú hefur mestan áhuga á. Á síðu nýrra flipa er að finna greinar sem Chrome hefur sérvalið fyrir þig út frá fyrri vafraferli þínum.