Notkunarreglur Gmail
Notkunarreglurnar hér fyrir neðan eiga við um Gmail. Reglurnar þjóna mikilvægu hlutverki í að stuðla að jákvæðri upplifun allra sem nota Gmail.
Ef þú notar Gmail með almennum (t.d. @gmail.com) reikningi skaltu einnig skoða þjónustuskilmála Google til að fá frekari upplýsingar. Ef þú notar reikning sem tengist vinnustað, skóla eða annarri stofnun kunna skilmálar sem byggja á samningi á milli stofnunarinnar og Google að gilda eða aðrar reglur. Stjórnandinn þinn kann að geta veitt frekari upplýsingar.
Við þurfum að sporna við misnotkun sem ógnar getu okkar til að veita þessa þjónustu og því förum við fram á að allir fylgi þeim reglum sem hér fara á eftir. Þegar okkur berst tilkynning um mögulegt brot á reglum kunnum við að fara yfir efnið og grípa til aðgerða, þ. á m. að takmarka eða loka fyrir aðgang notanda að vörum Google. Ef lokað er á reikninginn þinn og þú telur að það hafi verið fyrir mistök skaltu fylgja leiðbeiningunum á þessari síðu.
Við kunnum að grípa til aðgerða á reikningum sem fara yfir hámark geymslurýmis. Til dæmis gætum við bannað sendingu og móttöku skilaboða ef þú ferð yfir hámark geymslurýmis. Við gætum líka eytt efni af reikningnum þínum ef þú losar ekki geymslurými eða færð ekki aukið geymslurými. Lestu meira um hámark geymslurýmis hér.
Gættu þess að líta hér inn af og til því að reglurnar kunna að breytast.
Tilkynna misnotkun
Ef þú telur að reikningur hafi brotið notkunarreglur okkar geturðu tilkynnt það á marga vegu:
- Vegna almennrar misnotkunar skaltu nota þetta eyðublað
- Vegna nettælingar barns skaltu nota þetta eyðublað
- Vegna brota á höfundarrétti skaltu nota þetta eyðublað
Gakktu úr skugga um að þú lesir reglurnar hér að neðan til að þú skiljir skilgreiningu okkar á ósæmilegri hegðun. Google kann að loka á reikninga sem reynast brjóta gegn þessum reglum. Ef lokað er á reikninginn þinn og þú telur að það hafi verið gert fyrir mistök skaltu fylgja leiðbeiningunum á þessari síðu.
Óvirkur reikningur
Notaðu vöruna til að halda henni virkri. Virkni felur það í sér að opna vöruna eða efni hennar á minnst 2 ára fresti. Við kunnum að grípa til aðgerða á óvirkum reikningum, svo sem að eyða skilboðunum þínum úr vörunni. Lestu meira hér.
Ruslefni og fjöldapóstur
Ekki má nota Gmail til að dreifa ruslefni eða óumbeðnum auglýsingapósti.
Óheimilt að nota Gmail til að senda tölvupósta sem brjóta í bága við CAN-SPAM-lögin eða önnur lög um varnir gegn ruslpósti, til að senda í óleyfi tölvupósta í gegnum opna netþjóna þriðja aðila eða til að dreifa netföngum einstaklinga án samþykkis þeirra.
Eins er óheimilt að nota sjálfsstýringu í viðmóti Gmail til að senda, eyða eða sía tölvupósta á hátt sem blekkir eða villir um fyrir notendum.
Hafðu í huga að viðtakendur kunna að leggja aðra merkingu í orðin „óæskilegt“ eða „óumbeðið“ en þú. Sýndu góða dómgreind þegar sendur er tölvupóstur til margra viðtakenda í einu, jafnvel þótt viðtakendur hafi áður valið að fá tölvupósta frá þér. Þegar notendur Gmail merkja tölvupóst sem ruslefni eykur það líkur á því að efni frá þér verði einnig síðar merkt sem ruslefni af kerfinu sem við notum til að sporna gegn misnotkun.
Stofnun og notkun margra Gmail reikninga
Ekki má stofna eða nota marga reikninga til að brjóta gegn reglum Gmail, sneiða hjá takmörkunum Gmail reikninga, komast hjá síum eða grafa með öðrum hætti undan þeim takmörkunum sem gilda um reikninginn þinn. (Hafi annar notandi til að mynda sett þig á bannlista eða Gmail reikningurinn þinn verið gerður óvirkur vegna misnotkunar máttu ekki búa til nýjan reikning í staðinn til að halda þar uppteknum hætti.)
Eins er óheimilt að búa til Gmail reikninga með sjálfvirkum hætti eða kaupa, selja, skipta eða endurselja öðrum Gmail reikninga.
Spilliforrit
Ekki má nota Gmail til að dreifa vírusum, spilliforritum, ormum, trójuhestum, spilltum skrám eða öðrum skaðlegum eða blekkjandi hlutum. Jafnframt er óheimilt að dreifa efni sem skaðar eða truflar starfsemi netkerfa, netþjóna eða annars búnaðar í eigu Google eða annarra.
Svik, vefveiðar og aðrar blekkingar
Ekki má fara inn á aðgang annars notanda Gmail nema fyrir liggi óvéfengjanlegt samþykki viðkomandi.
Ekki nota Gmail fyrir vefveiðar. Ekki fara fram á eða safna viðkvæmum gögnum, þar á meðal, án þess að það takmarkist við, aðgangsorðum, fjárhagsupplýsingum og kennitölum.
Ekki senda skilaboð til að gabba, villa um fyrir eða blekkja aðra notendur til að deila upplýsingum á fölskum forsendum. Þetta felur einnig í sér að villa á sér heimildir sem önnur manneskja, fyrirtæki eða aðili með þeim ásetningi að gabba eða villa um fyrir.
Öryggi barna
Myndefni sem sýnir kynferðislega misnotkun á börnum er stranglega bannað á Google. Ef við uppgötvum slíkt efni munum við tilkynna það til miðstöðvar týndra og misnotaðra barna, líkt og lög kveða á um. Eins kunnum við að grípa til eigin refsiaðgerða, m.a. með því að loka Google reikningum þeirra sem hlut eiga að máli.
Google bannar einnig nettælingu barna með Gmail, sem er skilgreind sem hverjar þær aðgerðir sem miða að því að stofna til tengsla við barn til að minnka varnir þess með það að markmiði að undirbúa kynferðislega misnotkun, mansal eða aðra misnotkun.
Ef þú telur barn vera í hættu eða að það hafi þegar orðið fyrir misnotkun, misþyrmingum eða mansali skaltu umsvifalaust hafa samband við lögregluna á staðnum.
Ef þú hefur þegar tilkynnt mál til lögreglu og þarfnast ennþá hjálpar, eða ef þú hefur áhyggjur af því að barn sé í hættu eða hafi verið í hættu, geturðu tilkynnt Google hegðunina með þessu eyðiblaði. Mundu að þú getur alltaf lokað á einstakling sem þú vilt ekki að hafi samband við þig á Gmail.
Höfundarréttur
Virða skal höfundarréttarlög. Ekki brjóta gegn hugverkarétti annarra, s.s. réttindum varðandi einkaleyfi, vörumerki, viðskiptaleyndarmál og annan eignarrétt. Eins er óheimilt að hvetja aðra til að brjóta á hugverkarétti. Hægt er að tilkynna Google um brot á höfundarrétti með því að nota þetta eyðublað.
Áreitni
Ekki má nota Gmail til að áreita, ógna eða hóta öðrum. Þeir sem staðnir eru að því að nota Gmail í slíkum tilgangi eiga á hættu að reikningi þeirra verði lokað.
Ólöglegt athæfi
Fylgja skal lögum. Ekki má nota Gmail til að stuðla að, skipuleggja eða taka þátt í ólöglegu athæfi.